Þegar Íris Helga Jónatansdóttir starfaði um nokkurra mánaða skeið í grunnskóla í Hafnarfirði talaði hún ítrekað um dóttur Garps Elísabetarsonar sem dóttur sína við samstarfsfólk sitt. Þetta kemur fram í vitnisburði starfsmanna skólans fyrir dómi sem einnig greindu frá málavöxtum þegar Íris Helga sagði bekkjarfélaga stúlkunnar hafa sent henni óviðeigandi myndir.