Sturlað mark Ísaks tilnefnt sem mark mánaðarins

Nú stendur yfir kosning á marki mánaðarins í október í þýsku Bundesliga. Meðal marka sem eru tilnefnd eru mark Ísaks Bergmanns Jóhannessonar gegn grönnunum í Borussia Mönchengladbach. Landsliðsmaðurinn tók viðstöðulaust skot með vinstri fæti þegar boltinn skoppaði fyrir framan hann, smellhitti boltann sem fór í netið - alls ekki auðveld tækni. Bandaríski Íslendingurinn, Cole Campbell, á einnig mark á listanum en hann skoraði glæsilegt mark gegn Mainz.
Sturlað mark Ísaks tilnefnt sem mark mánaðarins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar