„Ríkar vísbendingar“ um markaðsráðandi stöðu Tix

Frummat Samkeppniseftirlitsins (SKE) segir að „ríkar vísbendingar“ séu um að Tix sé í markaðsráðandi stöðu á markaði fyrir rafræna miðasölu á viðburði þriðja aðila á Íslandi. SKE beinir leiðbeiningum og tilmælum til Tix og helstu viðburðarhúsa landsins.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.Markaðsráðandi staða er ekki ólögleg sem slík en henni fylgja sérstakar skyldur samkvæmt samkeppnislögum.„Samkeppniseftirlitið hefur beint þeim tilmælum til Tix að fyrirtækið gæti að stöðu sinni á markaði og leggi upplýst mat á hvort fyrirtækið sé í markaðsráðandi stöðu. Samhliða er því beint til fyrirtækisins að yfirfara samninga við viðsemjendur sína og ganga úr skugga um að í þeim felist ekki einkakaup eða önnur samkeppnishamlandi háttsemi sem fara kunni gegn samkeppnislögum.“ FEN
„Ríkar vísbendingar“ um markaðsráðandi stöðu Tix

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar