Sveitastrákurinn Ísak Guðnason hefur fórnað óteljandi klukkutímum í að komast á æfingar til að geta iðkað sína íþrótt og er einn efnilegasti hnefaleikakappi landsins. Hann er klár í slaginn á stærsta boxkvöldi ársins í kvöld þegar Icebox 11 fer fram á Ásvöllum, í beinni útsendingu á Sýn Sport.