Hægur vindur og dálítil væta sunnanlands

Útlit er fyrir suðvestlæga átt á landinu og vindur verður víðast hvar hægari en í gær. Búast má við rigningu af og til sunnanlands. Í öðrum landshlutum verður væntanlega lítil eða engin úrkoma.Þetta kemur fram í pistli veðurfræðings Veðurstofunnar.Hiti verður 3-10 stig, mildast á Austfjörðum.Á laugardag er spáð suðvestan strekkingi og rigningu en það verður þurrt á austanverðu landinu. Hiti 6-12 stig.
Hægur vindur og dálítil væta sunnanlands

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar