Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast samkvæmt nýjustu dagbók embættisins. Meðal verkefna voru afskipti af ökumönnum vegna gruns um umferðarlagabrot auk tilkynninga um þjófnaði úr verslunum. Lögreglumenn stöðvuðu bifreið þar sem ökumaðurinn er grunaður um að hafa ekið á 130 kílómetra hraða á klukkustund á vegarkafla þar sem leyfður hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund við bestu aðstæður....