Mikill eldur kom upp í stóru verslunarhúsnæði við Smiðjuveg í Kópavogi í nótt. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað á vettvang um klukkan tvö og voru slökkviliðsmenn frá fjórum slökkvistöðvum sendir á staðinn. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins birti á Facebook í morgun. Að sögn slökkviliðsins var um töluverðan eld að ræða en vel gekk að ráða niðurlögum hans....