Ítalskur pizzubakari rekinn eftir að hafa neitað að setja ananas á pizzur

Ítalski pizzubakarinn Davide Tamburella var rekinn frá veitingastaðnum La Costa í Brisbane í Ástralíu í maí eftir að hafa lent upp á kant við stjórnendur veitingastaðarins.Breska ríkisútvarpið segir að Tamburella hafi leitað til áströlsku vinnumálastofnunarinnar því hann taldi að uppsögn hans hefði verið óréttmæt. Í úrskurði vinnumálastofnunarinnar sem birtur var á þriðjudag kom fram að ágreiningurinn hefði verið vegna þess að Tamburella neitaði að setja ananas á pizzur því það væri móðgun við menningu hans. Hann neitaði alls þrisvar sinnum á síðastliðnum fjórum árum að setja ananas á pizzur.Þetta umdeilda pizzuálegg er einkar vinsælt í Brisbane, sem er hálfgerð höfuðborg ávaxtarins í Ástralíu en þar er ræktaður nær allur ananas sem seldur er í landinu. ORÐLJÓTUR OG ÓÁNÆGÐUR PIZZUBAKARI
Ítalskur pizzubakari rekinn eftir að hafa neitað að setja ananas á pizzur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar