Volodomyr Zelensky forseti Úkraínu og Pedro Sanchez forsætisráðherra Spánar á fundi í Madríd fyrr á þessu ári. Mynd úr safni.EPA / Chema MoyaYfirvöld á Spáni ætla að veita Úkraínu 437 milljónir evra í hernaðaraðstoð. Volodomyr Zelensky forseti Úkraínu tilkynnti um þetta í færslu á X eftir fund með Pedro Sanchez forsætisráðherra Spánar.Zelensky sótti fund Íberíu-Ameríkuráðstefnunnar í Madríd á miðvikudag þar sem hann hitti æðstu embættismenn frá spænsku- og portúgölskumælandi þjóðum í Evrópu og Ameríku.Hann segir að hernaðaraðstoðin verði nýtt til að efla loftvarnir Úkraínu. Tafir hafa orðið á afhendingu flugskeyta fyrir Patriot-loftvarnarkerfin og árásir Rússa að undanförnu hafa valdið miklum skorti á rafmagni og vatni.