Fundu rúmlega 3.000 tarantúlur í skítugum sokkum

Rúmlega 3000 tarantúlur fundust í farangri þriggja ferðamanna sem ætluðu sér að smygla köngulónum til Þýskalands. Ferðamennirnir, einn Pólverji og tveir Þjóðverjar, voru handteknir vegna málsins.Tarantúlurnar komu í ljós við hefðbundið tolleftirlit. Flugvallarstarfsmenn höfðu komið auga á óvenjulegar hreyfingar í ferðatöskum þremenninganna og við nánari skoðun kom í ljós að þar var að finna rúmlega 3000 tarantúlur af öllum stærðum og gerðum.Að sögn Coru Suarez, starfsmanns dýraeftirlits Perú, eru tarantúlum mjög verðmætar. Hún segir að þær seljist á um 500 evrur stykkið í Evrópu. Sé miðað við þetta verð má ætla að heildarverðmæti farmsins hafi verið um 1,5 milljónir evra, sem samsvarar rúmlega 205 milljónum íslenskra króna.Köngulærnar voru frá ýmsum svæðum í Perú og voru á ólíkum þroskasti
Fundu rúmlega 3.000 tarantúlur í skítugum sokkum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar