Rannsakendur Sameinuðu þjóðanna lögðu nýverið leynilega skýrslu fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna þar sem ítarlega er fjallað um aðkomu Sameinuðu arabísku furstadæmanna að átökunum í Súdan. Í skýrslunni er ítarlega farið yfir stuðning konungsríkisins við uppreisnarmenn sem sakaðir hafa verið um fjölmörg ódæði og þjóðernishreinsanir. Fyrrverandi utanríkisráðherra Furstadæmanna og háttsettur erindreki vill verða framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.