Margt hékk á spýtunni í nýloknum þingkosningum í Bandaríkjunum. Meðal annars framtíð hins dæmda morðingja Christu Pike, sem ekki tókst að taka af lífi í september síðastliðnum. Frambjóðendur til fylkisstjóra Tennessee höfðu mismunandi meiningar um hver framtíð hennar ætti að verða.