Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, hefur mildað refsingar þeirra 548 sem voru í dauðadeild í ríkinu. Þeir hljóta í staðinn lífstíðarfangelsi. Talan samsvarar um fjórðungi allra dauðadóma á landsvísu.Ákvörðunin er að mestu leyti táknræn en Kalifornía hefur ekki tekið fanga af lífi síðan árið 2006. Þó er talið að ákvörðunin geti sparað milljónir bandaríkjadala á ári hverju í málskostnað. Aðeins þrettán hafa verið teknir af lífi í Kaliforníu frá árinu 1978 þegar dauðarefsing var fest í lög á ný í ríkinu.Newsom tók fram að Hæstiréttur Kaliforníu þurfi að samþykkja náðun í málum þar sem einstaklingurinn var sakfelldur fyrir fleiri en einn glæp.Newsom hefur verið margorðaður við framboð Demókrata í forsetakosningunum 2028 en brátt fer að líða að lokum embættistíma hans sem ríkisstjóri í Kalif