Borið hefur á togstreitu í samfélaginu varðandi fyrirkomulag áfengissölu og þá er, að vissu leyti, uppi lagaleg óvissa í ofanálag.Forstjóri ÁTVR, Þorgerður Kristín Þráinsdóttir, segir fyrst og fremst þurfa að eyða þeirri óvissu sem ríkir um lagaramma áfengissölu. Forsvarsmenn netverslana með áfengi hafa bent á lagalega óvissu af hálfu stjórnvalda um áfengissölu.„Ég held að það sé fyrst og fremst mikilvægt fyrir alla sem koma að þessu máli að það fáist niðurstaða og að þessari óvissu sé eytt.“Forstjóri ÁTVR segir nauðsynlegt að fá skýrari lög um áfengissölu. Sú staða sem upp sé komin reynist bæði netverslunum með áfengi og ÁTVR flókin. ÁTVR STARFI INNAN ÞRÖNGS LAGARAMMA ÓLÍKT NETVERSLUNUM Hún segir þá stöðu sem upp sé komin vera flókna, ÁTVR sé ekki á samkeppnismarkaði og hagi sér því ek