KR vann toppslaginn og tyllti sér á toppinn

KR og Álftanes voru tvö af þremur liðum sem enn höfðu ekki tapað leik í Bónusdeildinni fyrir kvöldið. KR gerði góða ferð á Álftanes og lagði þar lið heimamanna með 102 stigum gegn 94. Tindastóll brá sér á Egilstaði og lagði þar Hött, 80-73, Keflavík vann ÍR í Breiðholti 100-90 og Íslandsmeistararnir í Grindavík unnu þriðja leik sinn í röð þegar þeir unnu Ármann í Laugardalshöll 100-81.KR er nú eitt á toppi deildarinnar með fullt hús stiga, 10 talsins. Þar á eftir koma Álftanes, Tindastóll, Keflavík og Valur. Valur á leik til góða gegn Sindra annað kvöld og geta Valsmenn þá jafnað við KR á toppnum, en Valur hefur ekki tapað leik í haust.Á botni deildarinnar eru svo Ármann, Sindri og Njarðvík án stiga. Njarðvík á leik til góða og mætir Stjörnunni á laugardag.
KR vann toppslaginn og tyllti sér á toppinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar