Eigendum húsa sem byggð voru á árunum 1924 til 1940 er ekki lengur skylt að leita álits Minjastofnunar Íslands vegna fyrirhugaðra breytinga, heldur fyrst og fremst heimilt. Forstöðumaður stofnunarinnar áréttar að það eigi við hús óháð byggingarári.Rúnar Leifsson, forstöðumaður Minjastofnunar, segir að misskilnings gæti um hús frá þessum tíma sem njóta hvorki friðunar né friðlýsingar. Lögum samkvæmt þarf að leita leyfis stofnunarinnar fyrir breytingu húsa sem byggð eru fyrir 1923.„Álitsskyldan sem felld var úr gildi fól ekki í sér lögbundna vernd, heldur var um að ræða leiðbeinandi en ekki bindandi álit. Lög um friðuð og friðlýst hús og mannvirki eru hins vegar óbreytt.“Með lagabreytingunni var sú breyting gerð að eigendum þessara húsa er ekki lengur skylt að leita álits Minjastofnunar Ísla