Undanfarið hafa börn á aldrinum tveggja til fjögurra ára víðs vegar um land fengið bóluefni gegn inflúensu með nefúða í stað sprautu. Það er léttir bæði fyrir foreldra og börn.„Þetta er ekki eins vont og þau eru ekki eins hrædd,“ segir Anna Ólafsdóttir, fagstjóri hjúkrunar á Heilsugæslunni Hlíðum.Nefúðinn fer í báðar nasir. „Þau finna varla fyrir þessu og þetta virkar frábærlega af því að þau eru bara svo ánægð með þetta,“ segir Anna.Þessa vikuna hefur verið opið hús á heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu frá 15-17. Eftir morgundaginn þarf að panta tíma til að fá nefúðann, í síma hjá sinni heilsugæslu eða í gegnum Heilsuveru, og það kostar ekki neitt.Síðustu daga hafa börn verið bólusett gegn inflúensu með nefúða í fyrsta sinn hér á landi. Nú er meira um hlátur en grát, segir Anna Ólafs