Ítrekaðar athugasemdir frá Vinnueftirlitinu og íbúar orðnir langþreyttir

Vinnueftirlitið hefur gert ítrekaðar athugasemdir við frágang á byggingu hótelturnsins við Skúlagötu. Götur hafa verið lokaðar kringum byggingarstaðinn árum saman og íbúar hafa kvartað.Enginn græðir á því að bygging hótelsins sé stopp eins og verið hefur síðan á mánudag. Skuldir eru geysiháar eins og hótelið og aðalkröfuhafinn, Arion banki, vinnur að lausn. LOKAÐ FYRIR BÍLAUMFERÐ UM ÁRABIL Vitastígur milli Skúlagötu og Lindargötu hefur verið lokaður fyrir bílaumferð um árabil. Ekki er heldur hægt að aka Skúlagötu milli Vitastígs og Barónsstígs því gatan er lokuð fyrir framan hótelið.Borgin gaf út afnotaleyfi fyrir þessu en reyndar er aðeins talað um þrengingu á Skúlagötu á vef borgarinnar en ekki lokun. Leyfið kostar 800 þúsund krónur á ári. Ekki var hægt að fá upplýsingar hjá borginni
Ítrekaðar athugasemdir frá Vinnueftirlitinu og íbúar orðnir langþreyttir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar