Í stefnuyfirlýsingu núverandi ríkisstjórnar er rætt um að draga þurfi úr vægi verðtryggingar og í húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sem var kynntur fyrir um ári segir að nýjar reglur um lágmarkshraða afborgana eigi að taka gildi 1. janúar.Áformin um að leggja fram frumvarp til að stytta lánstímann eru nú í samráðsgátt stjórnvalda og 16 umsagnir hafa borist. Sitt sýnist hverjum. Samtök atvinnulífsins og ÖBÍ réttindasamtök, sem ekki eru alltaf sammála – leggjast gegn breytingunni. Arion banki, sem hefur talað fyrir því að dregið sé úr vægi verðtryggingar í íslensku samfélagi, telur styttingu á lánstíma vera jákvætt skref en bendir meðal annars á að nauðsynlegt sé að ráðstafanir vegna greiðsluerfiðleika verði undanþegnar ákvæði um hámarkslánstíma. Tveir lífeyrissjóðir hafa skilað inn umsögn –