Samkvæmt nýjum tillögum stendur framlag háskólaráðuneytisins aðeins undir 45 af hundraði áætlaðs rekstrarkostnaðar Landbúnaðarháskóla Íslands á móti tveimur þriðju eins og verið hefur undanfarin ár.Í tilkynningu Ragnheiðar I. Þórarinsdóttur rektors segir að nauðsynlegt sé að fjármögnun háskólans verði leiðrétt áður en fjárlög verða afgreidd, að fjárfestingar verði fjármagnaðar án skerðingar grunnrekstrar og að breytingar á reiknilíkani verði unnar í samráði við skólana með raunhæfum aðlögunartíma.Ragnheiður segir að Landbúnaðarháskóli Íslands hafi á undanförnum árum sótt fram og styrkt stöðu sína verulega á alþjóðavettvangi. Starfsfólk skólans hafi náð mikilvægum árangri í rannsóknum, kennslu og öflun erlendra styrkja.Traustur rekstrargrundvöllur sé forsenda þess að skólinn geti áfram afla