Hönnunarverðlaun Íslands árið 2026 voru veitt í Grósku í kvöld. Bátalínan Leiftur var valin vara ársins, Frakkastígur 1 var valinn staður ársins og svo var Sketching Bathing in Iceland valið verk ársins. Húsgagna- og innanhússhönnuðurinn Eyjólfur Pálsson hlaut heiðursverðlaun og Aurora velgerðasjóður viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun.