Sprengjuhótun í tölvupósti til Hörpu

Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa fékk sprengjuhótun í tölvupósti í dag. Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, staðfesti það í samtali við fréttastofu.Hún segir að hótunin hafi borist í tölvupósti og þá hafi verkferlar strax verið virkjaðir.„Við komum þessu á framfæri við viðeigandi aðila og fengum mat á þessari hótun. Niðurstaðan var sú að það var ekki tilefni til að bregðast frekar við.“Hótunin var tilkynnt til lögreglu.Svanhildur segir að áður hafi komið upp tilfelli sem hafi þurft að skoða og að fara hafi þurft vel yfir öryggismál. Hún segist þó ekki geta tilgreint slík atvik sérstaklega.„Harpa er fjölsótt hús og það er mikið um að vera.“Mat á hótuninni hafi tekið stuttan tíma, starfsfólk hafi brugðist strax við og lögregla fljótt komið með niðurstöðu.Stjórnendur hafi fengið uppl
Sprengjuhótun í tölvupósti til Hörpu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar