Sýn tapaði 70 milljónum á þriðja fjórðungi ársins, sem er töluverður viðsnúningur á milli ára. Á sama tímabili í fyrra tapaði félagið 238 milljónum. Forstjóri segir ársfjórðungsuppgjör Sýnar sýna að aðgerðir undanfarinna ára séu að skila árangri. Tekjur af fjölmiðlun jukust um 19,4 prósent.