Veðurfyrirbærið El Niño gæti valdið verulegum truflunum á landbúnaðarframleiðslu á næstu mánuðum. Þetta gæti orðið til þess að matvælaverð hækki til muna á næstunni. Samkvæmt Alþjóðabankanum gæti heimsmarkaðsverðmatvæla hækkað um 10% á þessu ári og 7 % til viðbótar á næsta ári. Þetta kemur fram í frétt Rannsóknarseturs verslunarinnar, RSV.Talið er að El Niño-veðurfyrirbærið verði öflugra í ár en nokkru sinni síðan Alþjóðaveðurfræðistofnunin byrjaði að mæla umfang þess fyrir 40 árum. Áhrifanna eigi eftir að gæta víða.Alþjóðabankinn gerir ráð fyrir að heimsframleiðsla hrísgrjóna dragist saman í fyrsta sinn í áratug vegna óhagstæðra ræktunarskilyrða í Asíu. Pálmaolíuframleiðsla í Suðaustur-Asíu er einnig talin viðkvæm fyrir þurrkum, auk þess sem veðurfar getur haft áhrif á framleiðslu kaffis