Fjöldamótmæli voru boðuð í yfir 70 borgum í Frakklandi í dag. Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu í nokkrum borgum.Verkalýðsfélagið CGT, sem er eitt það stærsta í landinu, boðaði eins dags verkfall í dag til að vinnandi fólk gæti tekið þátt í mótmælunum. Samkvæmt upplýsingum innanríkisráðuneytis Frakklands tóku hátt í 600 þúsund manns þátt víðs vegar um landið. Þetta voru stúdentar, verkafólk, gulu vestin, kennarar og bændur. Verkalýðfélagið segir 1,6 milljónir manna hafa tekið þátt, þar af 350 þúsund í París. Um 70 þúsund lögreglumenn voru á vakt.Verkslýðsfélögin krefjast almennra launahækkana, skattalækkana og betri skilyrða til menntunat fyrir ungt fólk.Stúdentar voru virkir í mótmælum eins og þeir hafa verið undanfarnar vikur en þeir hafa krafist úrbóta á aðbúnaði í framhaldsskó