James Trafford verður í marki Leeds gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á laugardag þrátt fyrir dýrkeypt mistök í 2-0 tapinu gegn Bournemouth í síðustu umferð. Trafford gerði sjaldséð mistök þegar Justin Kluivert leikmaður Bournemouth komst inn í misheppnaða sendingu hans og Evanilson skoraði í tómt markið. Hægt er að sjá mistökin neðst í fréttinni. Leeds hafði byrjað leikinn betur en Bournemouth komst yfir með þessu marki á 31. mínútu.