Hjörtur Hermannsson var ekki valinn í landsliðshóp Arnars Gunnlaugssonar sem var opinberaður í gær og mætir Búlgaríu og Lúxemborg í síðustu tveimur leikjum riðilsins í C-deild Þjóðadeildarinnar. Hjörtur var heldur ekki valinn í síðasta landsliðshóp. Arnar sagði það vera vegna meiðsla en Hjörtur spilaði alla leiki Gautaborgar í aðdraganda síðustu landsleikja. Hann tók svo út leikbann í fyrsta leik eftir landsleikjatörnina og hefur síðan þá spilað alla leiki liðsins.