Enginn þeirra leikmanna sem tóku þátt í síðasta verkefni U21 landsliðsins var í A-landsliðshópi Arnars Gunnlaugssonar sem kynntur var í gær. Íslenska A-landsliðið mætir Búlgaríu og Lúxemborg í komandi landsleikjaglugga. Á sama tíma leikur U21 landsliðið við Grikkland í umspili um sæti á EM næsta sumar. Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari var spurður að því á blaðamannafundi í gær hvort einhverjir leikmenn U21 landsliðsins hefðu fengið kallið í A-landsliðið ef ekki hefði verið fyrir leikina mikilvægu gegn Grikklandi.