Kevin Cole aftur og aftur á Iceland Airwaves

Bandaríski útvarpsmaðurinn Kevin Cole frá KEXP í Seattle hefur verið tíður gestur á Iceland Airwaves í mörg ár. Fyrstu tvö árin sendi KEXP út frá Stúdíó 12 í útvarpshúsinu Efstaleiti en svo tóku við mörg góð ár á KEX hostel þar sem KEXP tók upp (hljóð og mynd) mikinn fjölda hljómsveita og listamanna og sendi milljónir hafa séð og heyrt síðan á netinu og Youtube.Í ár er ný heimildarmynd um Kevin Cole, líf hans og ástríðu fyrir músík, hluti af dagskrá Iceland Airwaves.Myndin heitir Radioheart: The Drive and Times of DJ Kevin Cole og hún verður sýnd í Bíó Paradís laugardaginn 7. Nóvember.Kevin kom fyrst á Iceland Airwaves 2009 en Rokkland spjallaði við hann í Hljóðrita í Hafnarfirði á hátíðinni 2011.
Kevin Cole aftur og aftur á Iceland Airwaves

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar