Demókratar náðu meirihluta bæði í öldungadeild og fulltrúadeild bandaríska þingsins í kosningum 3. nóvember. Það er algengt að flokkur sitjandi forseta tapi þingmeirihluta í kosningum á miðri setu hans en þessar niðurstöður og stærð sveiflunnar koma engu að síður á óvart. Kosningarnar snerust mikið um Donald Trump, eins og hann lagði í raun upp með, en það kom á endanum niður á flokkssystkinum hans í Repúblikanaflokknum.Forsetinn nýtur um þessar mundir ekki hylli nema um 36% kjósenda og það sást á úrslitunum. Í könnun sem gerð var fyrir sjónvarpsstöðvar vestra sást að þrír fjórðu kjósenda sögðust ekki sáttir við þá leið sem landið væri á, meirihluti þeirra sagði að efnahagsmálin skiptu mestu og tveir þriðju töldu ástandið hafa versnað í tíð Trumps. Spilling varð kosningamál og 62% sögðust