Sindri Þór Ingimarsson hefur lagt skóna á hilluna. Félag hans, Stjarnan, greinir frá þessu. Sindri er 27 ára gamall varnarmaður sem hefur spilað með Stjörnunni síðan 2022. Hann er uppalinn hjá Breiðabliki og lék einnig með venslaliðinu Augnabliki áður en hann fór í Stjörnuna.