Auglýsingar á Íslandi eiga að vera á íslensku, segir Snorri Másson þingmaður Miðflokksins. Hann mælti fyrir nýju frumvarpi á Alþingi fyrir nokkru um breytingu á markaðssetningarlögum.Í gildandi lögum segir að auglýsingar sem höfða eigi til íslenskra neytenda skuli vera á íslensku. Í frumvarpinu er lagt til að í stað þess segi að auglýsingar skuli vera á íslensku án þess að tekið sé sérstaklega fram að þær þurfi að höfða til íslenskra neytenda. Snorri var gestur Morgunútvarpsins Rásar 2 í morgun. MIKILVÆGT AÐ SETJA ÞETTA Í LÖG Þar sagði hann að farið væri á svig við þessi lög á hverjum degi þar sem fyrirtæki og auglýsendur gætu skýlt sér á bak við það að auglýsingarnar ættu að höfða til erlendra neytenda. Snorri segir ákveðna lögleysu í gangi sem bregðast þurfi við til að standa vörð um