Hinn umdeildi ítalski leikstjóri Tinto Brass lést í gær, 4. nóvember, 93 ára að aldri. Brass var í upphafi þekktur fyrir listrænar kvikmyndir en í seinni tíð fór hann að gera erótískar bíómyndir. Hann varð alræmdur árið 1979 þegar hann gerði kvikmyndina Kalígúla um rómverska keisarann.