Dóri mættur á Hlíðarenda - „Ég vil að Valur spili annan fótbolta"

Halldór Árnason er formlega tekinn við sem þjálfari Vals en hann var tilkynntur sem verðandi þjálfari meistaraflokks karla í lok júní. Á þeim tímapunkti ákvað stjórn Vals að láta Hermann Hreiðarsson fara og aðstoðarþjálfarinn, Chris Brazell, stýrði liðinu út tímabilið. Dóri, eins og Halldór er oftast kallaður, tekur við liðinu rúmlega ári eftir að hafa verið látinn fara frá Breiðabliki. Hjá Breiðabliki gerði Dóri liðið að Íslandsmeisturum 2024 og var aðstoðarmaður Óskars Hrafns þegar liðið varð meistari 2022. Tímabilin 2023 og 2025 komst Breiðablik í Sambandsdeildina. Langtímamarkmiðið hjá Val, samkvæmt þjálfaranum, er að berjast um titla og Evrópusæti. Þjálfarinn ræddi við Fótbolta.net um nýja starfið.
Dóri mættur á Hlíðarenda - „Ég vil að Valur spili annan fótbolta"

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar