Félagsmenn Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) samþykktu á fundi í gær að efna til atkvæðagreiðslu um verkfallsaðgerðir sem takmarkast við leiguflug Icelandair fyrir þriðja aðila.Aðgerðirnar næðu ekki til áætlunarflugs Icelandair heldur beinast fyrst og fremst að fyrirætlunum félagsins á Möltu, að því er segir í tilkynningu.„Tillagan sem borin verður undir atkvæði flugmanna tekur aðeins til leiguflugs Icelandair/Loftleiða fyrir þriðja aðila. Með þeirri afmörkun vill FÍA hlífa farþegum í leiðakerfi Icelandair við röskun, gæta almannahagsmuna og draga úr áhrifum hugsanlegra aðgerða á íslenskt efnahagslíf,“ segir í tilkynningu á vef FÍA. KJARADEILAN STRAND OG FYRIRÆTLANIR Á MÖLTU Kjaradeilur Icelandair og FÍA hafa verið á borði ríkissáttasemjara frá því í vor. Samningar hafa verið laus