Silja Bára Ómarsdóttir, háskólarektor og prófessor í alþjóðastjórnmálum, og Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari ræddu úrslit kosninganna í Bandaríkjunum í lengdum Heimsglugga á Morgunvaktinni á Rás 1. Þær voru sammála um að komið hefði á óvart hversu afgerandi sigur demókrata hefði verið. MIKIL UMSKIPTI Í BANDARÍSKUM STJÓRNMÁLUM Sigur demókrata var mun stærri en búist var við. Kannanir höfðu bent til þess að allar líkur væru á að flokkurinn ynni meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings en tvísýnna væri um úrslit í öldungadeildinni. Reyndin var einn stærsti sigur í sögu lýðræðisins í Bandaríkjunum. Silja Bára benti á að í kosningum síðustu ár hefðu kannanir ofmetið fylgi demókrata en að þessu sinni hefði flokknum tekist að auka kjörsókn og virkja hóp sem hafi verið talinn líklegur t