Áhrif lokunar fangelsins á Akureyri hafa ekki verið tekin út

Pláss var fyrir tíu fanga í fangelsinu á Akureyri. Því var lokað að tillögu Fangelsismálastofnununar fyrir sex árum. Það þótti óhagstæð rekstrareining og kostnaður við hvern fanga þar var umtalsvert hærri en í öðrum fangelsum.Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, óskaði eftir upplýsingum um áhrif lokunarinnar í skriflegri fyrirspurn til dómsmálaráðherra.„Hvað hefur komið á móti í auknum kostnaði við flutning á föngum suður, gæsluvarðhaldsföngum og öll umsvifin. Flugið og keyrslan, hvaða áhrif hefur þetta haft á embættið og kostnað á embættið og lögregluna á Akureyri. Ég er bara mjög ósáttur við svörin sem komu vegna þess að þau komu ekkert inn á það sem spurt var um. Sem var þá fyrst og fremst fjárhagslegi þátturinn,“ segir Njáll. RÝMIN TÍU MYNDU NÝTAST VEL Í DAG D
Áhrif lokunar fangelsins á Akureyri hafa ekki verið tekin út

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar