Íslenska tæknifyrirtækið 50skills hefur ráðið Lóu Báru Magnúsdóttur sem leiðtoga erlendra markaða. Lóa Bára kemur frá Origo þar sem hún gegndi stöðu framkvæmdastjóra sölu og markaðsmála undanfarin fimm ár. Ráðningin er sögð liður í áframhaldandi uppbyggingu félagsins í kjölfar nýrrar fjármögnunar frá erlendum fjárfestum.