Leikkonan Dafne Keen greinir frá því í hlaðvarpinu Inside of You að henni hafi verið boðið kókaín í Hollywood-veislum þegar hún var aðeins barn að aldri. Keen er nú 21 árs en sló í gegn árið 2017 þegar hún lék stökkbreytta stúlkuna Lauru, einnig þekkta sem X-23, á móti Hugh Jackman í kvikmyndinni Logan. Hún var aðeins 11 ára þegar...