Varðstjóri hjá lögreglunni á Vestfjörðum segir öryggi og heilsu lögreglumanna á Ísafirði ógnað vegna gjörsamlega óviðunandi vinnuaðstöðu. Mælirinn sé fullur. Vinnueftirlitið hafi gert fjölmargar athugasemdir við aðstöðuna en ekkert hafi verið gert til úrbóta af hálfu Framkvæmdasýslunnar.