Á annan tug sprengjuhótana hafa borist í dag í farþegaflug víða um Evrópu. Hótanir bárust vegna fjögurra flugvéla á leið til Prag en engar sprengjur hafa fundist við leit. Þá barst hótun í flug frá Dublin til Rómar. Flugfélögin sem hafa fengið slíkar hótanir eru Ryanair, Wizz air, Finnair og Lot.