Stjórnskipunar - og eftirlitsnefnd Alþingis ætlar að hefja frumkvæðiskönnun á samskiptum fjármálaráðherra og Landsvirkjunar og hvort ráðherra hafi sagt þinginu ósatt þegar hann var spurður út í uppsögn forstjóra fyrirtækisins.Beiðni þessa efnis, sem þingmenn Viðreisnar lögðu fram, verður tekin fyrir á fundi nefndarinnar í dag.Ingveldur Anna Sigurðardóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks og annar varaformaður nefndarinnar gerir ráð fyrir að beiðnin verði samþykkt.„Ráðherra hefur gefið óskýr svör gagnvart þinginu frá 19. október sem og í gær. Það er hlutverk stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að vera ákveðið aðhald og rannsaka svona mál. Þannig að við munum taka þetta til skoðunar,“ segir Ingveldur. Fyrsta skrefið verði að kalla eftir gögnum þar á meðal fundargerðum.Daði Már Kristófersson fjárm