Landeigendur í Patreksfirði óskuðu eftir að fá að eiga flothring af sjókví sem rak á strendur þeirra nýverið. Hringurinn hafði verið á reki og strand til skiptis í firðinum síðan um miðjan september. Slíkur hringur getur vegið allt að 20 tonn og er að miklu leyti gerður úr plasti. Vísindamenn fjölluðu um plastmengun frá sjókvíaeldi á ráðstefnunni Atlantic Plastics sem fram fór í Hörpu á dögunum. Hún er töluverð.„Svo eru það göngubrettin sem eru í kringum, sem þú getur labbað í kring á þessum mannvirkjum, þau tapast all mikið og reka hingað og þangað. Það er sem sagt bara heilmikið tap af plasti í fiskeldi,“ segir Haraldur Arnar Einarsson, sérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun.Þá segir Haraldur einnig að fóðurrörin sem notuð eru til þess að gefa fiskunum séu úr plasti og þau eyðist að innan.