Seðlabankinn tekur yfir stærsta banka landsins

Stjórnarandstaðan í Paragvæ hefur lagt fram tillögu um að víkja Santiago Pena forseta landsins úr embætti. Ástæðan er fall Ueno-bankans, stærsta banka landsins, sem hefur gert það að verkum að milljónir viðskiptavina hafa ekki aðgang að fjármunum sínum.Seðlabanki Paragvæ tók Ueno-bankann yfir á þriðjudag. Seðlabankinn taldi það nauðsynlegt vegna skorts á lausafé í bankanum til að halda fjármálakerfinu stöðugu. Búið er að gefa út handtökuskipan á átta af helstu stjórnendum bankans, þar á meðal forstjórann Miguela Vazquez sem hefur þegar gefið sig fram við lögreglu.Um þrjár milljónir manna eru í viðskiptum við bankann, sem er um helmingur íbúa landsins. Yfirtakan varð til þess að fólkið missti aðgang að inneignum sínum í bankanum. Seðlabankinn tók þó fram að reikningseigendur fengju allt að
Seðlabankinn tekur yfir stærsta banka landsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar