Verulegur slaki hefur myndast í hagkerfinu og flest bendir til þess að efnahagsástandið haldi áfram að versna fram eftir næsta ári, samkvæmt nýrri greiningu Acro, en verðbólgan hjaðni hratt og nálgist markmið undir lok ársins. Þótt framleiðsluslakinn sé mögulega meiri en Seðlabankinn gerir ráð fyrir þýða þrálátar verðbólguvæntingar að peningastefnunefndin getur ekki verið verið framsýn, en spáð er að vextir lækki um 175 punkta á árinu 2027.