Sala nýrra bíla tók kipp í október og hafði aukist nokkuð næstu tvo mánuði á undan. Ástæðan er helst rakin til lækkunar á styrk Orkusjóðs til rafbíla. Alls voru seldir sex hundruð nýir bílar í október samkvæmt tölum Bílgreinasambandsins.Janúar einn skákar október þegar tæplega átta hundruð nýir bílar voru skráðir. Nú telur FÍB að rekja megi fjölgunina til nýrra reglna stjórnvalda um ríkisstyrki til rafbílakaupa sem tóku gildi fyrsta nóvember.Þá fór styrkurinn úr hálfri milljón króna niður í fjögur hundruð þúsund og hámarkskaupverð lækkaði úr tíu niður í átta milljónir króna. Eftir að sú ákvörðun varð ljós auglýstu bílaumboð rafbíla í gríð og erg.Vörugjöld á farartæki hækkuðu um áramót og því tollafgreiddu umboðin fjöldann allan af bílum sem svo voru afhentir janúar, einkum til bílaleiga. Þ