Tónlistarmaðurinn og Nóbelsverðlaunahafinn Bob Dylan heimsótti Leó fjórtánda páfa í Vatíkanið í gær á Rómarstoppi á tónleikaferðalagi sínu um Ítalíu. Dylan mætti í svartri hettupeysu, svörtum buxum, með svarta hanska og regnhlíf sem veitti gott mótvægi við hvítum klæðnaði páfans.