Móðir fjögurra stúlkna sem sættu langvarandi ofbeldi á heimili sínu í Reykjanesbæ sagði lögreglu að það viðgengist í þeirra menningarheimi að segja „ég ætla að drepa þig“. Fyrrverandi eiginmaður hennar og faðir stúlknanna kom til Íslands árið 2017 og er ríkisborgari bæði Egyptalands og Venesúela.