Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur skipað starfshóp um endurskoðun á lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr.Hann á að vinna frumvarp til nýrra laga með hliðsjón af ráðleggingum Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunarinnar (WOAH) og skýrslu starfshóps um endurskoðun löggjafar um dýrasjúkdóma og -lækna.Samkvæmt tilkynningu á vef Stjórnarráðsins verður einkum rýnt í atriði sem snúa að starfsleyfi, lágmarksdýralæknaþjónustu og fyrirkomulagi vakta á landsvísu.„Jafnframt mun hópurinn endurskoða reglur um stjórnskipulag málaflokksins þannig að sjúkdómsgreining og hröð viðbrögð við alvarlegum dýrasjúkdómum séu tryggð og boðleiðir skýrar.“Stefnt er að því að leggja fram nýtt frumvarp til laga á grundvelli tillagna hópsins haustið 2027.Formaður Dýralæknafélagsins sagði í sumar að