Leggja til endurskoðun á aðalskipulagi Reykjavíkur

Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs vill hefja undirbúning að endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur til 2040 nú þegar. Tillaga þess efnis var samþykkt á fundi ráðsins í gær og vísað áfram til borgarráðs.Lagt er til að sérstakur stýrihópur verði skipaður til að hafa yfirumsjón með verkinu.„Endurskoðun mun m.a. fela í sér endurmat á framtíðarsýn og lengingu skipulagstímabils auk endurskoðunar á stefnuákvæðum fyrir valin svæði og málaflokka,“ segir í fundargerð.Í bókun meirihlutans segir að verkefnið þurfi að vinna í þverpólitískri sátt. Sérstaklega þurfi að horfa til framtíðarþarfa í húsnæðismálum, þróunar byggðar og samgangna. Þá þurfi að horfa til þess hvernig skipulag í Reykjavík getur stuðlað að minni losun gróðurhúsalofttegunda og ábyrgri nýtingu lands.Í bókun fulltrúa Samfylkingarin
Leggja til endurskoðun á aðalskipulagi Reykjavíkur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar